Félagslegir trúnaðarmenn Einingar-Iðju sem starfa í fiskvinnslu á Eyjafjarðarsvæðinu skora á stjórnvöld að auka kvóta nú þegar. Þetta kemur fram í ályktun sem fundur þeirra sendi frá sér í gær. Í ályktuninni segir að ljóst sé að mörg fyrirtæki munu loka í lengri tíma ef ekkert verður að gert og setur það störf fiskvinnslufólks í hættu.
“Óöryggi starfsfólks í undirstöðuatvinnugrein þjóðarinnar er ekki forsvaranleg í því ástandi sem nú er. Fundurinn hvetur til þess að sú umræða sem er í þjóðfélaginu um sjávarútvegsmál verði á faglegum nótum, ekki handahófskennd, því á bakvið útveginn er starfsfólk og þeirra lífsafkoma,” segir jafnframt í ályktuninni.



