Stúdentar við Háskólann á Akureyri fagna fullveldi

Skrifað 01. desember 2009 klukkan 12:19 | Örlygur Hnefill | Fréttir | Senda á Facebook |

Háskólinn á AkureyriÍ dag verður venju samkvæmt haldið upp á fullveldisdaginn 1. desember í Háskólanum á Akureyri. Dagurinn hefur jafnan verið tileinkaður stúdentum enda taka þeir virkan þátt í dagskránni. Að þessu sinni hefst dagskráin á málþingi sem tileinkað er fullveldinu og ber yfirskriftina Fullveldi ríkis: jafnrétti, stjórnlög og framtíð. Að málþinginu loknu hefst hátíðardagskrá við Íslandsklukkuna þar sem Stefán B. Sigurðsson, rektor flytur ávarp og fyrrum rektor HA, Þorsteinn Gunnarsson hringir Íslandsklukkunni. Þá mun kór Glerárkirkju syngja fyrir viðstadda og svo er öllum boðið inn í matsal HA í heitt kakó og smákökur. Á bókasafninu opnar myndlistamaðurinn Brynhildur Kristinsdóttir sýninguna Minningar breytast í myndir og ljóð.

Málþingið fer fram í stofu L201 frá klukkan 14:00 – 16:00 en hátíðardagskrá við Íslandsklukkuna hefst klukkan 16:10.

Lokað fyrir athugasemdir.