Skytturnar sigruðu á Gimli Cup mót Skautafélagsins

Skrifað 01. desember 2009 klukkan 14:18 | | Fréttir, Íþróttir | Senda á Facebook |

SkytturnarÍ gærkvöld lauk þriðja krullumóti vetrarins hjá Krulludeild Skautafélags Akureyrar. Mótið sem nú var að ljúka heitir Gimli Cup og er þar keppt um veglegan bikar sem gefinn var af Vestur-Íslendingunum Alma og Ray Sigurdsson í Gimli í Manitóba í tilefni af opnun Skautahallarinnar árið 2000. Fyrst var keppt um bikarinn 2001 og er mótið nú því það níunda í röðinni.

Átta lið úr röðum Krulludeildar SA tóku þátt í mótinu nú og voru það Skytturnar sem stóðu uppi sem sigurvegarar, unnu sex leiki af sjö. Í öðru sæti urðu Mammútar, unnu fimm leiki, og í þriðja sæti Garpar með fjóra vinninga. Þetta er annað mótið sem Skytturnar vinna á þessu keppnistímabili en fyrr í haust varð liðið Akureyrarmeistari í krullu.

Í liðinu eru þeir Jón Hansen, Árni Ingólfsson, Sigurgeir Haraldsson, Árni Arason og Ágúst Hilmarsson. Með sigrinum nú náðu tveir liðsmenn úr Skyttunum að vinna Gimli-bikarinn í þriðja skiptið, þeir Jón Hansen og Ágúst Hilmarsson, en auk þeirra hefur Hallgrímur Valsson einnig unnið bikarinn þrisvar.

Athugaemdir