Lögreglan lýsir eftir vitnum

Skrifað 15. nóvember 2009 klukkan 00:19 | | Fréttir | Senda á Facebook |

Helgin var róleg hjá lögreglunni, og vonandi að næsta helgi verði það líka.Lögreglan á Akureyri leitar að vitnum að árekstri sem varð þann 11. nóvember síðastliðinn. Áreksturinn varð á Þórunnarstræti  við Gléráreyrar (sunnan Glerártorgs) um klukkan 17.40. en um var að ræða hvíta Kia Sportage bifreið og bláaToyota Hiace sendibifreið.

Þeir sem kynnu að hafa verið vitni að árekstrinum eru beðnir um að hafa samband við lögregluna á Akureyri í síma 464 7700.

Lokað fyrir athugasemdir.