Rétt um 1500 manns sitja nú þjóðfund í Laugardalshöll í Reykjavík, en fundurinn er sá fyrsti sinnar tegundar í heiminum. Þar er samankominn þverskurður þjóðarinnar, valinn af handahófi úr þjóðskrá, til þess að móta framtíðarsýn, byggða á skýrum sameiginlegum grunngildum. “Nú verðum við að hætta að hugsa í flokkum og bæjarfélögum. Þetta eru gildin okkar sem við erum að velja og fólkið kemur allsstaðar að af landinu. Hér drögum við okkur ekki í dilka, heldur vinnum saman sem ein þjóð, óháð því hvort við komum af höfuðborgarsvæðinu eða landsbyggðinni.” segir Sigríður Kristín Hrafnkelsdóttir, lýðheilsufræðingur, sem er einn af maurunum sem gefa vinnu sína í þágu fundarins.
Akureyringar eiga eins og aðrir sína fulltrúa á þjóðfundinum. Blaðamaður akureyri.net er staddur í fjölmiðlamiðstöð fundarins og hefur rekist á fjölmarga norðanmenn, bæði almenna fundarmenn, hópstjóra og sjálfboðaliða. Sunna Valgerðardóttir er ein þeirra. Hún segir jákvæðni og samstöðu einkenna fundinn. “Það er líka ekki sjálfgefið að fólk nenni að vakna klukkan níu á morgnana og jafnvel fara yfir hálft landið, en hér virðast það ekki skipta máli.”
Blaðamaður mun fylgjast með framvindu fundarins í dag, en niðurstöður í rauntíma ásamt beinni útsendingu af fundinum má nálgast á vefslóðinni thjodfundur.is. Einnig má nálgast myndir á Flickr síðu fundarins og myndskeið á Youtube.


