KEA veitir 8 milljónum til afreksfólks og menningarverkefna

Skrifað 05. nóvember 2009 klukkan 14:14 | | Fréttir | Senda á Facebook |

KEASteingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra og Halldór Jóhannsson framkvæmdstjóri KEA afhentu á dögunum styrki úr Menningar- og viðurkenningasjóði KEA. Er þetta í 76. sinn sem KEA veitir styrki úr sjóðnum og fór úthlutunin fram í Listasafninu á Akureyri. Alls bárust 130 umsóknir um styrki en 38 hlutu styrkir, samtals að upphæð 8 milljónir króna.

Úthlutað var úr fjórum styrkflokkum; almennum flokki, ungum afreksmönnum, þátttökuverkefnum og íþróttastyrkjum. Þrettán aðilar hlutu almennan styrk, hver að upphæð 150 þúsund krónur. Til ungra afreksmanna voru veittar fjórtán viðurkenningar og styrkir, samtals 2,1 milljón króna. Til þátttökuverkefna var úthlutað 1,5 milljón króna og hlutu fjórir aðilar styrk. Sjö íþróttastyrkir voru veittir, samtals að fjárhæð 2,5 milljónir króna.

Athugaemdir