Sex leikmenn frá KA hafa verið valdir í U19 landslið Íslands í blaki, sem leikur þessa dagana á NEVZA mótinu í Danmörku. Í karlaliðið voru valdir þeir Árni Björnsson, Daniel Sveinsson, Jóhann Eiríksson og Sigurbjörn Friðgeirsson. Í kvennaliðið voru valdar systurnar Guðrún Margrét Jónsdóttir og Auður Anna Jónsdóttir.
Flestir leikmanna KA hafa áður spilað með U17 eða U19 landsliðum en þó munu Daníel Sveinsson og Sigurbjörn Friðgeirsson spila sína fyrstu landsleiki á mótinu í Danmörku. Þjálfarar liðanna eru reyndir og auk þess að þjálfa U19 landsliðin eru þeir báðir A landsliðsþjálfararnir Íslands, Michael Overhage fyrir karlana og Apostol Apostolov fyrir konurnar.


