Bæjarráð Akureyrar samþykkti tilhögun yfirstjórnar Grímseyjar á fundi sínum í morgun. Núverandi bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar mun hafa með höndum stjórn hins sameinaða sveitarfélags til sveitarstjórnarkosninga árið 2010 og fer því með alla sveitarstjórn í Grímsey.
Fagnefndir Akureyrarkaupstaðar fara hver á sínu sviði með málefni sem varða Grímsey og undir þær heyra. Hreppsnefnd Grímseyjarhrepps verður samráðsnefnd fram að sveitarstjórnarkosningum 2010.Samráðsnefnd hefur það hlutverk að vera tengiliður fagnefnda og íbúa Grímseyjar og hefur rétt til að skipa einn áheyrnarfulltrúa úr nefndinni til setu á fundum fagnefnda, með málfrelsi og tillögurétt, þegar málefni eyjarinnar eru til umfjöllunar.
Fundargerð bæjarráðs má finna á vef Akureyrarbæjar.


