Stúdentar við HA fagna hækkun grunnframfærslu LÍN

Skrifað 24. september 2009 klukkan 12:07 | | Fréttir, Háskólinn, Skólar | Senda á Facebook |

Háskólinn á AkureyriFélag stúdenta við Háskólann á Akureyri hefur sent frá sér ályktun þar sem fagnað er ákvörðun ríkisstjórnarinnar um að verða að tillögu félags- og tryggingarmálaráðherra og menntamálaráðherra um hækkun grunnframfærslu LÍN.

Í ályktuninni segir; “FSHA telur að með aðgerðinni sé verið að koma til móts við þann hóp stúdenta sem stendur einna verst í efnahagsþrengingunum. Með hækkun grunnframfærlsu LÍN um 20% er verið koma til móts við tekjaminnsta hóp námsmanna. Með aðgerðinni er stigið gríðarlega mikilvægt skref í að bæta stöðu námsmanna. Þó svo að hér sé um mikið framfaraskref þá telur FSHA óhóflega hækkun skerðingarhlutfalls áhyggjuefni gagnvart skuldugum námsmönnum sem eiga ekki annarra kosta völ en að vinna með námi. Sá hópur námsmanna gæti orðið fyrir talsverðri tekjuskerðingu vegna hækkunar skerðingarhlutfalls úr 10% í 35%.”

“Með aðgerðinni er vonast til þess að hægt sé „að hvetja atvinnulausa til mennta og draga þannig úr atvinnuleysi og styðja við efnahagslega framþróun byggða á aukinni færni og þekkingu“ eins og fram kemur í yfirlýsingu ráðuneytanna. Þeirri stefnu ber að fagna en sem stendur standa háskólarnir frammi fyrir miklum niðurskurði sem erfitt verður að mæta ásamt mikilli fjölgun námsmanna. Jafnframt ríkir óvissa um hvort háskólunum sé kleift að taka við nemendum um áramót og þá hversu mörgum. Því sé óvíst hvort aðgerð ríkisstjórnarinnar geti náð tilætluðum árangri gagnvart atvinnuleysi við núverandi niðurskurðaráform.
FSHA vill árétta það við þá námsmenn sem höfðu sótt um námslán fyrir breytingar að sækja um aftur til þess að fá nýja lánsáætlun skv. breyttum reglum. Taka ber þó fram að þeir námsmenn sem eru með miklar tekjur ættu vandlega að skoða hvort nýjar úthlutunarreglur koma sér vel fyrir þá fjárhagslega áður en sótt er um skv. nýju reglunum.”

Athugaemdir