Leikskólar á Akureyri fá Austurríska nema í heimsókn

Skrifað 24. september 2009 klukkan 15:09 | | Fréttir, Leikskólar, Skólar | Senda á Facebook |

Leikskólakennaranemar frá AusturríkiUndanfarna daga hafa þrjátíu og þrír Austurrískir leiksskólakennaranemar unnið og numið við Akureyska leikskóla. Nemarnir hafa stundað nám sitt í 10 leikskólum hér í bænum. Hugmyndin að heimsókninni til Íslands kom til vegna þess að Íslenskur skiptinemi var við nám í skólanum þar sem þau nema í Austurríki.

Í Austurríki er leikskólakennaranám nám á framhaldsskólastigi og byrja nemendurnir fjórtán ára og útskrifast um tvítugt. Nemarnir hafa verið mjög ánægð með dvölina hér á landi og líkar vel við Akureyri. Þau segja góða reynslu að koma inn í skóla hér á landi þar sem þau þurfa að reiða sig á annað en talað tungumál til að eiga samskipti við börnin, en þar að auki hefðu börnin verið mjög fljót að kenna þeim að tala.

Athugaemdir