Akureyri.net skyggnist aftur í tímann

Skrifað 24. september 2009 klukkan 12:04 | | Fréttir, Menning | Senda á Facebook |

Hörður GeirssonNýr liður birtist lesendum Akureyri.net í dag, en það er safn gamalla mynda af mannlífi og sögu Akureyrar. Myndirnar eru fengnar úr ljósmyndasafni Minjasafns Akureyrar og eru flestar teknar af ljósmyndurum dagblaðsins Dags. Þær eru frá árunum 1970 til 2000 og ætti fólk því auðveldlega að geta fundið einhverja sem það þekkir á myndunum. Nú þegar eru nokkrar myndir komnar á vefinn og mun þeim fjölga á næstu dögum og vikum. Blaðamenn Akureyri.net sátu löngum stundum í safninu í sumar við skönnun myndanna og nú er unnð að hreinsun þeirra fyrir birtingu á vefnum.

Ritstjóri Akureyri.net vill koma á framfæri þökkum til Harðar Geirssonar og annarra starfsmanna Minjasafnsins fyrir mikla hjálp og að gera þetta mögulegt. Myndasafnið er að finna hér til hægri á síðunni í dálknum “Aftur til fortíðar”.

Athugaemdir