Þrem frumkvöðlum útivistarmála veitt viðurkenning

Skrifað 23. september 2009 klukkan 16:02 | | Fréttir | Senda á Facebook |

Johan Holst að sýna nýja stíga í NaustaborgumUm helgina var þremur frumkvöðlum í útivistarmálum á Akureyri veitt viðurkenning fyrir starf sitt. Það var félagsskapurinn Saumó sem veitti viðurkenningarnar, en hann samanstendur af áhugamönnum um útivist og uppbyggilegar athafnir, eins og segir í fréttatilkynningu.

Viðurkenningin sem veitt var kallast “Vegvísirinn” og hann hlutu Johan Holst, framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Eyfirðinga, Rúnar Þór Björnsson, formaður siglingaklúbbsins Nökkva og Guðmundur Karl Jónsson, forstöðumaður skíðasvæðisins í Hlíðarfjalli.

Johan Holst, framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Eyfirðinga
Johan hefur tekið stígagerð í nýjar víddir og skapað umhverfi sem er á við það sem best þekkist í Evrópu. Er nú svo komið að hópar alls staðar af landinu koma gagngert til þess að hjóla og njóta útivistar í Kjarnaskógi á stígum þeim sem Johan hefur hannað og búið til. Frumkvæði og framkvæmdargleði Johans er sérstaklega eftirtektarverð og öðrum til eftirbreytni.

Rúnar Þór Björnsson, formaður siglingaklúbbsins Nökkva
Rúnar hefur um áratugaskeið unnið óeigingjarnt starf við uppbyggingu siglingarstarfs á Pollinum og víðar. Rúnar hefur verið vegvísir starfs þess sem fram fer í Nökkva og gengið þannig til verks að eftir er tekið um land allt. Frumkvæði og framkvæmdagleði Rúnars er sérlega eftirtektarverð og öðrum til eftirbreytni.

Guðmundur Karl Jónsson, forstöðumaður skíðasvæðisins í Hlíðarfjalli
Guðmundur Karl hefur leitt þróun Hlíðarfjalls í það að vera frábært skíða- og snjóbrettasvæði. Er nú svo komið að Hlíðarfjall er raunhæfur kostur í alþjóðlegu samhengi og fyrirmynd annarra skíðasvæða í landinu. Akureyri er nú vinsælasti áfangastaður allra skíða- og snjóbrettaiðkenda á Íslandi. Frumkvæði og framkvæmdagleði Guðmundar Karls er sérlega eftirtektarverð og öðrum til eftirbreytni.

Á meðfylgjandi mynd er Johan Holst að sýna nýja stíga í Naustaborgum.

Athugaemdir