Sögukennari MA skrifar kennsluefni um verkalýðshreyfinguna

Skrifað 23. september 2009 klukkan 01:35 | | Framhaldsskólar, Fréttir, Skólar | Senda á Facebook |

Menntaskólinn á AkureyriAlþýðusamband Íslands efndi i vor til hugmyndasamkeppni um ritun námsefnis um verkalýðshreyfinguna, sögu hennar, sigra og hlutverk í nútímasamfélagi undir yfirskriftinni Hvernig er best að fræða grunnskólanemendur um verkalýðshreyfinguna?

Róbert F. Sigurðsson sögukennari við Menntaskólann á Akureyri var valinn til að skrifa þetta kennsluefni. Í verklýsingu fyrir samkeppnina í vor kom meðal annars fram að þekking ungs fólks á verkalýðshreyfingunni, sögu hennar og hlutverki, væri orðin lítil og nauðsynlegt að semja aðgengilegt efni til þess að fræða megi skólafólk um hreyfinguna, hvaða máli hún hefur skipt í lífi launafólks og hverju hún getur með samtakamætti fólksins fengið áorkað. Gert er ráð fyrir að þetta verði allt að 40 blaðsíðna bók, sem gefin verður út í 5000 eintökum og dreift meðal nemenda 9. og 10. bekkjar í öllum grunnskólum landsins. Bókinni munu fylgja kennaraleiðbeiningar og verkefni handa nemendum.

Athugaemdir