Aðalfundur Íþróttafélagsins Þórs var haldinn í gær og var stjórn félagsins einróma endurkjörinn af um fimmtíu fundarmönnum. Stjórnina skipa Sigfús Ólafur Helgason og með honum eru Árni Óðinsson, Nói Björnsson og Páll Jóhannesson. Formenn deilda eru síðan meðstjórnendur.
Sigfús sagði mikla orku hafa farið í uppbyggingu íþróttasvæðis Þórs undanfarið ár og margir hafi þar lagt hönd á plóginn. Risið sé eitt glæsilegasta íþróttasvæði landsins á Þórssvæðinu og það hafi verið metnaður félagsins að leggja bæjaryfirvöldum allt það lið sem hægt væri til að lokafrágangur svæðissins yrði eins góður og framast væri unnt.
Þegar skýrsla stjórnar og reikningar félagsins höfðu fengið umræðu og verið samþykktir gekk á fundinn Haukur Valtýsson varaformaður Landsmótsnefndar. Fram kom í máli Hauks að Landsmótsnefndin hafi þótt framganga og öll vinnubrögð Íþróttafélagsins Þórs, sem og gott samstarf við Sigfús Ólaf formann Þórs hafa verið eins gott og hugsast gæti. Framlag Þórs hafi vegið stórt í því hve allt tókst með miklum ágætum. Því hafi landsmótsnefndin vilja færa Íþróttafélaginu gjöf sem þakklætisvott og færði félaginu kveðjur frá landsmótsnefndinni. Gjöfin er stór og falleg loftmynd af Þórssvæðinu sem tekin er landsmótshelgina.
Á fundinum minntist Sigfús Ólafur í fáum orðum Óskars Erlendssonar sem lést fyrr í mánuðinum og var jarðsunginn í gær. Óskar starfaði um árabil fyrir knattspyrnudeild Þórs og var meðal annars formaður unglingaráðs.
Nánar er fjallað um aðalfundinn á vefsíðu Þórs, þaðan sem myndin er fengin.
Efnisorð: Vikan


