Kjördæmisþing Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi sem haldið var í Öxarfirði á dögunum telur Vaðlaheiðargöng forgangsverkefni til eflingar atvinnu, samgagna og ferðamála í kjördæminu. Þingið segir afar mikilvægt að gangnagerðin hefjist þegar á árinu 2010. Þá mælist þingið til aukinnar markaðssetningar svæðisins til eflingar ferðamennsku og stækkunar flugstöðvar á Akureyrarflugvelli.
Þá ályktaði samfylkingarfólk um Atvinnumál og segir þar meðal annars: “Atvinnuuppbygging á Bakka við Húsavík og orkuleit og orkuvinnsla á svæðinu mega undir engum kringumstæðum frestast og mikilvægt er að ríkisstjórnina bresti ekki stefnufestu í atvinnuuppbyggingu í Þingeyjarsýslum og á öðrum stöðum í kjördæminu. Þjóðvegur 1 er ekki fullunninn í kjördæminu og á honum eru enn nokkrar einbreiðar brýr með tilheyrandi slysahættu og er það algjörlega óviðunandi ástand. Þá þess krafist að öryggi þeirra sem þurfa að fara yfir háa fjallvegi til að sækja vinnu og þjónustu sé tryggt með öflugu viðhaldi og þjónustu þessara vega. Jafnframt vill fundurinn að mótuð verði margviss áætlun um jarðgangagerð í kjördæminu þar sem aldrei sé unnið að færri en einum jarðgöngum í ríkisframkvæmd.”


