Verkmenntaskólinn á Akureyri er í samstarfi við skóla í Finnlandi og Danmörku og hafa þeir skólar nú óskað eftir nemendaskiptum á vorönn 2010. Tveim nemendum af matvælabraut og tveim nemendum á sjúkraliðabraut er boðið að fara til náms í Finnlandi og þrem sjúkraliðanemum að auki er boðið til Danmerkur. Er verkefnið styrkt af Leonardo da Vinci-sjóði Evrópusambandsins og í því felst að hver nemandi fær greiddar 500 evrur í ferðakostnað og 175 evrur á viku í dvalarkostnað. Þetta er því spennandi tækifæri fyrir unga Akureyringa.



