Í vetur verður boðið upp á fjöldan allan af námskeiðum fyrir fólk á öllum aldri í Punktinum. Meðal þess sem kennt verður í vetur eru fluguhnýtingar, körfugerð, leikfangasmíði, leirmótun, þæfing og svo mætti lengi telja. Þá eru að vanda kenndar saumar og í vetur verður einnig kennt að endurnýta föt, en það ætti að gagnast mörgum í harnandi árferði. Punkturinn er í möguleikamiðstöðinni Rósenborg, en hægt er að kynna sér námskeiðin betur hér.


