Þorsteinn E. Arnórsson, þjónustufulltrúi hjá Einingu-Iðju, færði bókasafni Háskólans á Akureyri veglega bókagjöf á dögunum. Um var að ræða tvö ritsöfn sem félagið eignaðist fyrir nokkrum árum, en ákveðið var að færa háskólanum ritsöfnin til að þau nýtist sem flestum.
Annað ritsafnið heitir Verdenshistorien og er í 16 bindum útgefnum á árunum 1965 til 1968. Hitt ritsafnið heitir Salmonsens Konversations Leksion og er í 26 bindum útgefnum á árunum 1915 til 1930. Það var Astrid M. Magnúsdóttir, forstöðumaður upplýsingasviðs háskólans, sem veitti bókunum viðtöku fyrir hönd skólans.




