Tónlistarhátíðin Akureyri Rokkar var haldin í Ungmenna-Húsinu um síðustu helgi og allt í allt spreyttu sig hvorki fleiri né færri en 10 rokkhljómsveitir. Gestir hátíðarinnar voru hátt í þrjúhundruð talsins og fór aðsóknin fram úr björtustu vonum skipuleggjenda . Meðal hljómsveita sem spiluðu voru Robonia, Disturbing Boner og Earendel en flest böndin eru skipuð Akureyringum.
Þorsteinn Marinó sá um skipulagningu hátíðarinnar en aðgangseyrir sem safnaðist verður nýttur til endurbóta á æfingaaðstöðu hljómsveita í Ungmenna-Húsinu. Húsið er upplýsinga- og menningarmiðstöð ungs fólks á Akureyri sem býður upp á ýmiskonar afþreyingu fyrir ungt fólk, auk þess sem ýmsir hópar nýta sér aðstöðuna sem í boði er. Að sögn stjórnenda Hússins er spennandi vetur framundan, þar sem reglulega verða haldnir tónleikar, stuttmynda- og ljósmyndanámskeið og videokvöld svo fátt eitt sé nefnt.
“Ungmenna-Húsið er opið alla daga nema sunnudaga frá 16-22 og eru áhugasamir einstaklingar og/eða hópar hvattir til þess að kynna sér aðstöðuna. Ungmenna-Húsið þakkar Þorsteini og öðrum þeim sem tóku þátt fyrir sig,” segir í tilkynningu frá Ungmenna-Húsinu.



