Einleikurinn Djúpið á sviði Samkomuhússins

Skrifað 22. september 2009 klukkan 15:12 | | Fréttir, Menning | Senda á Facebook |

Ingvar E. Sigurðsson leikariEinleikurinn Djúpið eftir Jón Atla Jónasson verður sýndur í Samkomuhúsinu á fimmtudag og föstudag. Þar gefst áhorfendum kostur á að sjá einn ástsælasta leikara þjóðarinnar, Ingvar E. Sigurðsson, í mögnuðu verki. Einleikurinn var heimsfrumsýndur í Skotlandi í apríl sl. og fékk frábærar viðtökur og fjögurra stjörnu leikdóm í The Scotsman.

Bátur heldur úr höfn rétt fyrir dögun. Menn ýmist fleygja sér í koju eða halda sér vakandi á sígarettum, kaffi og veltingi. Enginn hefur minnsta grun um hvað er í vændum. Djúpið er frásögn úr íslenskum veruleika sem lætur engan ósnortinn. Þetta er óður til allra þeirra fjölmörgu íslensku sjómanna sem í gegnum aldirnar hafa haldið á djúpið.

Verkið var frumsýnt í Borgarleikhúsinu 5. júní og hlaut einróma lof gagnrýnenda. Aðalhlutverkið leikur stórleikarinn Ingvar E. Sigurðsson og höfundurinn Jón Atli Jónasson leikstýrir. Leikmynd gerir Árni Páll Jóhannsson, tónlist er eftir Hilmar Örn Hilmarsson og lýsingu hannaði Björn Bergsteinn Guðmundsson.

Athugaemdir