Aflþynnuverksmiðja Becromal hóf starfsemi sína föstudaginn 21. ágúst, á Krossanesi. Undirbúningur hefur gengið vel, en rétt tvö ár eru liðin frá því að raforkusamningur var undirritaður. Nú hafa tvær vélar verið gangsettar og fyrstu vörurnar runnið út, en alls verða 64 vélasamstæður í gangi þegar framleiðslan kemst á flug. Um 20 vélasamstæður verða komnar í gang um áramót, en líklega mun taka um ár að koma framleiðslu á fullt á öllum vélasamstæðum.
Verksmiðjan er sú lang stærsta sinnar tegundar í Evrópu, og er fyrsta græna stóriðjan á Íslandi. Engin mengun fylgir verksmiðjunni og engin spilliefni. Eina losunin frá verksmiðjunni er sjór sem er endurnýttur til að kæla vélarnar.
Heildarfjöldi starfsmanna í verksmiðjunni er um 90 en þegar hafa 30 manns tekið til starfa. Mikill meirihluti þeirra verða Íslendingar. Heildarfjöldi starfa þegar allt verður komið í fullan gang – ásamt afleiddum störfum – er talinn verða nærri þrjú hundruð.


