Mikil eftirvænting ríkir nú hjá starfsmönnum Leikfélags Akureyrar, enda leikárið í þann mund að hefjast. Í fréttatilkynningu frá leikfélaginu kemur fram að 96.000 gestir sáu sýningar félagsins í fyrra, sem er meira en helmingi fleiri gestir en árin á undan. Þetta góða gengi gefur okkur byr undir báða vængi og á morgun, fimmtudaginn 3. september hefst sala áskriftakorta. Miðaverð hefur haldist óbreytt síðustu þrjú ár.
Fyrsta frumsýning ársins er verkið Lilja, í leikstjórn Jóns Gunnars Þórðarsonar, en Lilja verður frumsýnd þann 9. október. Hinn sígildi farsi Dario Fo, Við borgum ekki, við borgum ekki, verður sýndur á Akureyri 18. sept, og viku síður einleikur Jóns Atla Jónassonar, Djúpið. Dagskrá leikársins og nánari upplýsingar má nálgast á heimasíðu LA, leikfelag.is. Einnig bendum við á viðtal sem Akureyri.net átti við Maríu Sigurðardóttur, leikhússtjóra í sumar, þar sem hún skýrir frá viðfangsefnum leikársins.





