Útvarpsmaður Akureyrar, Siggi Gunnars á Voice, er með sinn seinasta morgunþátt í dag og til að hætta með stæl ákvað hann að hafa þáttinn í dag í lengra lagi. Morgunþátturinn hans sem byrjaði klukkan 9 í morgun stendur nefnilega enn og verður fram eftir kvöldi. Siggi er sestur á skóabekk og ætlar í vetur og næstu ár að nema fjölmiðlafræði við Háskólann á Akureyri en hann segist þó ekki vera alfarinn frá Voice. Hlustendur munu því heyra eitthvað í honum áfram þó morgunþátturinn sé hættir, í bili að minnsta kosti. Það var líf og fjör í stúdíói Voice þegar blaðamenn Akureyri.net litu þar við í dag og augljóst að Siggi er spenntur að takast á við ný verkefni. Auk náms í háskólanum mun hann stýra vikulegum sjónvarpsþætti á N4 í vetur þar sem fókusinn verður á ungt fólk á Akureyri.



