Alþingi samþykkti fyrir stundu frumvarp um ríkisábyrgð á láni Breta og Hollendinga til tryggingasjóðs innistæðueigenda. Að samþykkinu loknu var sumarþingi slitið, en þetta er lengsta sumarþing í sögu Alþingis.
Þrjátíu og fjórir þingmenn sögðu já, fjórtán sögðu nei og fjórtán sátu hjá. Þá var einn þingmaður fjarverandi. Allir þingmenn stjórnarflokkanna í Norðausturkjördæmi, Samfylkingar og Vinstri grænna, samþykktu ábyrgðina. Þingmenn Framsóknarflokksins í kjördæminu greiddu atkvæði gegn ábyrgð og þingmenn Sjálfstæðisflokks sátu hjá.
Já sögðu:
Bjarkey Gunnarsdóttir (V)
Björn Valur Gíslason (V)
Jónína Rós Guðmundsdóttir (S)
Kristján L. Möller (S)
Sigmundur Ernir Rúnarsson (S)
Steingrímur J. Sigfússon (V)
Nei sögðu:
Birkir Jón Jónsson (B)
Höskuldur Þórhallsson (B)
Kristján Þór Júlíusson (D) og Tryggvi Þór Herbertsson (D) sátu hjá.




