Hin árlega Akureyrarvaka verður sett í Lystigarðinum klukkan 20.00 í kvöld og nær hámarki annað kvöld, með glæsilegu lokaatriði. Dagskráin á morgun hefst á skógargöngu um Eyrina með Skógræktarfélagi Eyfirðinga sem lýkur með ketilkaffi á Eiðsvöllum. Fleiri göngur verða á Akureyrarvöku því gengið verður á milli verka á sýningunni Freyjumyndir sem er samsýning fjölmargra listamanna og sýningin á víð og dreif um Akureyri. Einnig er verið að vígja nýjan göngustíg í Naustaborgum og hver veit nema ketilkaffi verði þar á boðstólum.
Það verður nóg um að vera á Akureyrarvökunni. Í fjósinu í Galtalæk verður söngur og súkkulaði, í Samkomuhúsinu verða frumfluttar drama og grínóperur, í Húsinu við Rósenborg verða tónleikar með hljómsveitinni Nursing á Semi, í portinu á bak við ljósmyndastofu Páls verða Buxnaskjónar, Gruesome Glory og Völva. Á Græna hattinum mun hljómsveit Ingu Eydal spila öll akureysku lögin, í Sjallanum Bravóbítlar og Comet, í Akureyrarkirkju verður Orkustöðin, miðnætur tónleikar í Populus Tremula, Kristján Edelstein á Strikinu og að lokum verða í Gilinu Úti-Stórtónleikar Veitingastaðarins RUB 23 um kvöldið með þeim Sick bird, Manhattan, Hundi í óskilum og Hvanndalsbræðrum.
Ljósmyndin verður í hávegum höfð því opnun sýningarinnar Krig og kærlighed verður í Ketilhúsinu. Á Listasafninu á Akureyri verður opnuð sýningin Úrvalið: Íslenskar ljósmyndir frá 1866-2009 og er þar sýningarstjóri Einar Falur Ingólfsson. Á Glerártorgi opna tvær sýningar, Friður fyrir komandi kynslóðir og Ásýnd Akureyrar í augum ungmennanna sem er samvinnuverkefni unglinga úr Vinnuskólanum og N4 á ljósmyndum og sjónvarpsþáttum.
Af myndlistinni er frá mörgu að segja því opnanir verða í flestum galleríum og vinnustofum bæjarins. Margrét Jónsdóttir leirlistakona afhjúpar verk sem hún vann með unga fólkinu, Jónas Viðar mun sýna verk úr eigu gallerýsins, sýningin Krig og kærlighed opnar í Ketilhúsinu, og í Deiglunni opna listakonurnar Ásthildur og Ásthildur sýninguna Lífsmunstur-Líf í nýju landi. Í Gallerí Við8tta601 verður verk eftir Harald Jónsson afhjúpað í hólmanum í Leirutjörn við Drottningarbraut. GalleríBOX opnar svo sýninguna Container, samsýningu finnskra listamanna. Hugleikur Dagsson er með opnun á VeggVerkinu við Glerárgötu, og svo mætti lengi telja.
Síðustu ár hefur skapast sú hefð á Akureyrarvöku að miðbær Akureyrar breytist í útileikhús þegar líður að miðnætti og í ár verður ekkert gefið eftir.
Sirkus Sannleikur leiðir fólk í gegnum miðbæinn, þar sem við sögu koma bleik yndisbirta, brjóstahaldarar, kvenna- og karlakórar og eikarbáturinn Húni II.
Dagskrá Akureyrarvöku í heild sinni er að finna á slóðinni www.visitakureyri.is. Þá má sjá myndir og myndbönd frá dagskránni hér á Akureyri.net.



