Vel hefur gengið að manna grunnskólana á Akureyri fyrir veturinn. Í fréttablaðinu Skóla akur sem kom út í dag segir að ekki hafi verið óalgengt að sex umsóknir bærust um hverja stöðu, og er hlutfall fagmenntaðra starfsmanna nálægt 100 prósentum.
Nú á mánudaginn hófu 2.586 nemendur skólastarf í grunnskólum bæjarins. Þar af eru 264 nemendur í fyrsta bekk að stíga sín fyrstu skref á skólabekk.
Ekki hefur þurft að fækka starfsmönnum í skólum bæjarins, þrátt fyrir efnahagsástandið. Stöðugildafjöldi starfsmanna helst óbreyttur, en um 400 starfsmenn í 378 stöðugildum starfa í grunnskólunum. Þó hefur þurft að grípa til margvíslegra aðgerða til að lækka rekstrarkostnað skólanna. Þrengra er um aðföng en áður og einnig hefur þurft að hætta ýmsum hliðarverkefnum. Sem dæmi má nefna að frístundir skólanna munu loka klukkan 16.15 í vetur, en ekki 17.15 eins og áður var.
Mynd:
Naustaskóli á Akureyri (Hörður Geirsson)



