Gleymdist að lýsa fjögurra milljarða króna kröfu Stapa

Skrifað 25. ágúst 2009 klukkan 14:30 | | Fréttir | Senda á Facebook |

Hús Lögmannsstofunnar við StrandgötuLífeyrissjóðurinn Stapi á Akureyri gæti orðið af fjögurra milljarða króna kröfu sem sjóðurinn átti hjá Straumi-Burðaráss. Vegna mistaka var kröfunni ekki lýst innan tilskilins tímafrests og þarf nú að fá samþykki annnarra kröfuhafa til að krafa Stapa komist að. Samkvæmt gjaldþrotalögum þurfa handhafar þriggja fjórðu hluta heildarfjárhæðar almennra krafna að samþykkja kröfu lífeyrissjóðsins eftir að frestur hefur runnið út, til þess að lífeyrissjóðurinn geti endurheimt fjárhæðina að hluta.

Samkvæmt fréttum RÚV í dag hefur sjóðurinn þegar sent um þrjúhundruð kröfuhöfum bréf þar sem óskað er eftir samþykki þeirra á kröfu Stapa. Það er Lögmannsstofan ehf. við Strandgötu sem annaðist málið fyrir Stapa. Í tilkynningu frá sjóðnum segir að hefð sé fyrir því hér á landi að taka tillit til atvika sem þessara, sem augljóslega eru til komin vegna mannlegra mistaka. “Tímarnir eru hins vegar óvenjulegir og því ekki á vísan að róa í þessu efni. Ljóst er að tjónið getur orðið umtalsvert fyrir sjóðinn fari málið á versta veg og rýrt ávöxtun hans um 2-4%. Ekki verður ljóst hver niðurstaða málsins verður fyrr en að nokkrum vikum liðum. Þangað til mun sjóðurinn ekki tjá sig frekar um málið.”

Þá segir í tilkynningu sjóðsins að Lögmannsstofan ehf. hafi mikla reynslu af málum sem þessu og hafi margsinnis áður lýst kröfum fyrir sjóðinn án nokkurra vandkvæða.

Athugaemdir