Enn unnið að framkvæmdum við bílastæði HA

Skrifað 24. ágúst 2009 klukkan 22:39 | Örlygur Hnefill | Fréttir, Háskólinn, Skólar | Senda á Facebook |

Bílastæði Háskólans á AkureyriUnnið hefur verið að framkvæmdum við bílastæði Háskólans á Akureyri að Sólborg í sumar. Samkvæmt áætlun átti að ljúka framkvæmdum fyrir upphaf skólaársins en vegna erfiðs jarðvegs á svæðinu náðist það ekki.
Verkið reyndist umfangsmeira en gert var ráð fyrir í fyrstu þar sem jarðvegur var erfiðari en búist var við.

Sökum þessa skapast ákveðin vandræði hvað bílastæði varðar og hefur starfsfólk háskólans ekki farið varhluta af því í sumar. Þeim óskum er því beint til bæði starfsfólks og nemenda sem fara að streyma í háskólann á næstu dögum að nýta sér aðra fararkosti en einkabíla sem framast er unnt. Á meðan veður haldast góð er hægt að hjóla eða ganga og þá er vert að minna á að frítt er í strætó á Akureyri.

Forsvarsmenn HA biðjast velvirðingar á þeim óþægindum sem kunna að skapast af þessu ástandi en reiknað er með því að hluti af nýju bílaplani verði tekin í notkun í lok ágúst en framkvæmdunum við planið líkur ekki fyrr en síðar í haust.

Lokað fyrir athugasemdir.