Þorsteinn Már skattakóngur Íslands

Skrifað 30. júlí 2009 klukkan 13:10 | | Fréttir | Senda á Facebook |

Þorsteinn MárÞorsteinn Már Baldvinsson útgerðarmaður á Akureyri er skattakóngur Norðurlands eystra og jafnframt skattakóngur landsins. Hann greiðir tæplega 170 milljónir króna í skatta og opinber gjöld fyrir árið 2008. Þorsteinn gegndi stöðu stjórnarfomanns Glitnis við hrun bankans á síðasta ári.

Jóhannes Jónsson kaupmaður í Bónus er í öðru sæti yfir hæstu greiðendur skatta hér í umdæminu en hann greiðir rúmlega 33 milljónir króna en er ekki meðal tíu hæstu greiðenda opinberra gjalda þegar litið er á landið í heild. Þórólfur Gíslason kaupfélagsstjóri á Sauðárkróki er hæstur í umdæmi skattstjóra á Norðurlandi vestra.

Athugaemdir