Styttist í Eina með öllu

Skrifað 24. júlí 2009 klukkan 14:12 | Ingimar Björn | Atburðir, Fréttir, Menning | Senda á Facebook |
Plaggat hátíðarinnar Ein með öllu 2009.

Undirbúningur vegna Einnar með öllu gengur mjög vel, samkvæmt upplýsingum skipuleggjenda, og allir sem til hefur verið leitað hafa verið tilbúnir til að leggja sitt af mörkum svo hér verði glæsileg fjölskylduhátíð um verslunarmannahelgina. Fjölmargir listamenn munu koma fram á ýmsum stöðum í bænum og yfirbragðið verður ljúft og elskulegt.

Þema helgarinnar verður ABBA með tilheyrandi dansi, söng og búningum og alla helgina verða viðburðir víðsvegar um bæinn sem eru til þess fallnir að gera lífið skemmtilegra. Lokaatriði dagskrárinnar verður líkt og í fyrra einkar vandaðir sparitónleikar á Akureyrarvelli. Nánari upplýsingar um dagskrá er að finna á www.einmedollu.is.

Starfsmenn útvarpsstöðvarinnar Voice hafa eins og áður gert sérstakt hátíðarlag, og er það ábreiða af Abba laginu “Gimme gimme gimme”. Það er Sigurður Þorri, útvarpsmaðurinn knái, sem syngur, og við látum myndbandið fylgja hér með:

Ein athugasemd

  1. [...] Benni hjá Hljóðkerfa og ljósaleigu Akureyrar segir frá Ein með öllu [...]