Slökkvilið Akureyrar var kallað út nú fyrir stundu vegna reyks í húsi að Aðalstræti 13. Kallaður var út auka mannskapur enda er húsið gamalt timburhús og þröngt á milli húsa. Eldurinn virðist hafa komið upp í eldhúsi. Enginn var í íbúðinni þegar eldurinn kom upp, en ungt par í íbúðinni við hliðina komst slysalaust út ásamt ungu barni sínu.
Búið er að slökkva eldinn í húsinu sem var ekki mikill, en þónokkur hiti var í húsinu. Verið er að leita að glóð á milli þilja, en húsið er sennilega talsvert skemmt.









[...] Bruni í Aðalstræti 13 [...]