Hljómsveitin Hvanndalsbræður mun spila fyrir gesti Landsmóts á Akureyri laugardaginn 11. júlí næstkomandi klukkan 21.00 á Ráðhústorgi. Hljómsveitin hefur ákveðið að reyna að slá Guinnes heimsmetið í magadansi með gestum mótsins, en metið í dag eru 535 manns dansandi magadans á sama tíma á sama stað. Það met var sett í Malvern í Bretlandi 8. nóvember 2008 og sett á fót af BBC radio Hereford and Worcaster.
Hljómsveitarmeðlimir vona svo sannarlega að mótsgestir muni taka vel í þessa beiðni og vonast til þess að standa ekki einir upp á sviði í magabolum eins og hálfvitar, það væri þó ekkert nýtt fyrir bandið. Gestir þurfa þó ekki að mæta í sérstökum magabolum heldur vera tilbúnir að svipta hulunni af bumbunni þegar kallið kemur og vera þannig yfir einu lagi og dilla sér á meðan hausatalning fer fram.




