Boðberar friðar heimsækja Akureyri

Skrifað 08. júlí 2009 klukkan 02:08 | | Fréttir, VefTV | Senda á Facebook |
Hermann Jón og sr. Jóna Lísa ásamt friðarhlaupurunum utan við Akureyrarkirkju í gær. Mynd/IngimarB

Hermann Jón og sr. Jóna Lísa ásamt friðarhlaupurunum utan við Akureyrarkirkju í gær. Mynd/IngimarB

Það var falleg stund í sólinni utan við Akureyrarkirkju í gær þegar 25 hlauparar allsstaðar að úr heiminum hittu Hermann Jón Tómasson bæjarstjóra og sr. Jónu Lísu Þorsteinsdóttur og báru þeim og Akureyringum öllum boðskap um frið og einingu. Hlaupararnir taka þátt í svokölluðu friðarhlaupi, eða World Harmony Run, sem hlaupið er um allann heim. Þau eru nú hálfnuð í kyndilboðhlaupi sínu umhverfis landið, og kveðja Akureyri klukkan níu, miðvikudaginn 8. júlí. Þá koma þau saman á Akureyrarvelli ásamt leikskólabörnum bæjarins til að sameinast í hinum fallega boðskap hlaupsins.

Friðarhlaupið veitti Hermanni Jóni og Sigrúnu Björk Jakobsdóttur, forseta bæjarstjórnar, medalíu hlaupsins,“Kyndilberi friðar”, en fyrsti viðtakandi þessara verðlauna var nífaldur Ólympíugullverðlaunahafi og talsmaður Friðarhlaupsins, Carl Lewis.  Friðarhlaupið vill leggja áherslu á að medalíurnar sem það veitir Hermanni og Sigrúnu tilheyra jafnframt öllum bæjarbúum Akureyrar, en þar hefur Friðarhlaupið jafnan átt góðan stuðning og hvatningu vísa í gegnum 22 ára sögu sína sem hófst árið 1987.

Get the Flash Player to see the wordTube Media Player.

Það var menntamálaráðherra, Katrín Jakobsdóttir, sem setti Friðarhlaupið, miðvikudaginn 1. júlí síðastliðinn. Við það lagði Friðarhlaupið upp í ferð sína um Ísland og mun heimsækja 46 bæi á leiðinni. Hlaupinu lýkur fimmtudaginn 16. júlí við Tjörnina í Reykjavík.

Friðarhlaupið samanstendur af 25 sjálfboðaliðum frá 15 þjóðlöndum sem gefa tíma sinn og vinnu til að kyndillinn geti ferðast um Ísland. Friðarhlaupið safnar ekki fé og leitar ekki eftir stuðningi við pólitískan málstað. Markmið hlaupsins er einfaldlega að auka meðvitund um að friður, vinátta og skilningur hefst í hjarta hvers og eins.

Athugaemdir