Gönguvika í Eyjafirði

Skrifað 05. júlí 2009 klukkan 14:35 | | Fréttir | Senda á Facebook |
Hápunktur gönguviku er Glerárdalshringurinn þar sem 24 tindar eru gengnir á 24 tímum. Mynd/Friðfinnur Skúlason

Hápunktur gönguviku er Glerárdalshringurinn þar sem 24 tindar eru gengnir á 24 tímum. Mynd/Friðfinnur Skúlason

Á morgun hefst gönguvika á Akureyri og í Eyjafirði, en þar verða göngur af ýmsum toga og erfiðleikastigum í aðalhlutverki. Gönguvikan er samvinnuverkefni Akureyrarstofu, Ferðafélagsins Hörgs í Hörgárbyggð, Ferðafélags Akureyrar, Glerárdalshringsins 24X24 og Minjasafnsins á Akureyri.

Í boði eru skipulagðar göngur með fararstjóra á Möðruvallafjall, Ystuvíkurfjall, Kerlingu, Hlíðarfjall, Vaðlaheiði, meðfram Glerá og í innbænum, svo eitthvað sé nefnt, en hápunktur vikunnar er sennilega Glerárdalshringurinn stóri, umfangsmikill fjallgönguviðburður sem genginn er árlega í byrjun júlí. Þá eru farnir 24 tindar á 24 tímum, en nánari upplýsingar um Glerárdalshringinn má fá hér.

Nánari upplýsingar um ferðirnar má fá hér í viðburðadagatali Akureyri.net.

Lokað fyrir athugasemdir.