Starfshættir liðinna tíma sýndir í Laufási

Skrifað 04. júlí 2009 klukkan 14:20 | | Fréttir | Senda á Facebook |
Danshópurinn Vefarinn sýnir dans að loknum heyskapi í Laufási.

Danshópurinn Vefarinn sýnir dans að loknum heyskapi í Laufási.

Á morgun gefst ferðafólki og fróðleiksfúsum færi á að fylgjast með fólki við ýmsa iðju sem tíðkaðist í gamla daga á sumarstarfsdegi í Laufási. Hvernig verður smjör til? Hvernig fór fólk að því í gamla daga að gera skyr? Hvernig fór fólk að við heyskap fyrir tíð heyvinnuvéla? Þessum spurningum verður svarað í gamla bænum í Laufási á morgun, og stendur dagskráin milli klukkan 13.30 og 17.00.

Dagskráin hefst í kirkjunni kl 13:30 þar sem sr Bolli Pétur Bollason stýrir fjölskyldusamveru. Að henni lokinni verður fólk að störfum í gamla bænum.  Gestum og gangandi verður boðið að smakka á ýmsu góðgæti sem unnið verður í gamla bænum s.s. nýgerðri smjörklípu á heimabökuðu rúgbrauði og nýgerðu skyri, og gómsætar lummur verða bakaðar á hlóðum. Á hlaðinu verður heyskapur í fullum gangi og danshópurinn Vefarinn stígur dans eftir að honum lýkur.
Þátttakendur í starfsdeginum í Laufási eru félagar úr Laufáshópnum auk fjölda annara sjálfboðaliða, en opið er í Laufási frá 9 – 18 alla virka daga.

Athugaemdir