Gríðarleg þáttaka í hönnunarsamkeppni

Skrifað 04. júlí 2009 klukkan 14:58 | | Fréttir | Senda á Facebook |
Esther Stefánsdóttir, stjórnandi samkeppninnar og Dórothea Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Handverkshátíðar í pakkaflóðinu.

Esther Stefánsdóttir, stjórnandi samkeppninnar og Dórothea Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Handverkshátíðar í pakkaflóðinu.

Gríðarlegur fjölda verka hefur borist í hönnunarsamkeppnina “Þráður fortíðar til framtíðar” sem fram fer í tengslum við Handverkshátíð að Hrafnagili. Skilafrestur í hönnunarsamkeppnina Þráður fortíðar til framtíðar rann út föstudaginn 3.júlí.  Bárust yfir 300 bögglar hafa borist og mikil vinna er fyrir höndum að fara í gegnum allt og undirbúa störf dómnefndar.
 
Keppt er í tveimur flokkum, annars vegar flíkur og hins vegar opinn flokkur. Tuttugu verk úr hvorum flokki verða valin á sýningu sem fram fer á Handverkshátíð 2009 í Hrafnagilsskóla, en hún er haldin í 17. sinn dagana 7.-10.ágúst 2009.

Tilnefningar til verðlauna verða kynntar hálfum mánuði fyrir hátíðina, en Handverkshátíðin er nú haldin í 17. skipti og verða yfir 70 sýnendur, þar af margir nýjir aðilar. Áhugi Íslendinga á handverki virðist því mikill, ef marka má vinsældir hátíðarinnar og þáttökuna í hönnunarsamkeppninni.
 
Sjá nánari upplýsingar um samkeppnina á www.handverkshatid.is.

Athugaemdir