Gestkvæmt í bænum um helgina

04.07.09 15:09 | | Fréttir | Senda á Facebook |
Það er líf og fjör hjá keppendunum ungu á N1 móti KA. Myndin er af heimasíðu mótsins.

Það er líf og fjör hjá keppendunum ungu á N1 móti KA. Myndin er af heimasíðu mótsins.

Mikill fjöldi fólks er nú í bænum vegna íþróttamóta, N1 móts KA-manna og Pollamóts Þórsara. Í fyrra tilfellinu takast á ungir drengir í 5. flokki, en á Pollamóti takast á eldri keppendur sem komnir eru af léttasta skeiði. Alls eru um 2.000 keppendur á mótunum, 1.400 á N1 – mótinu og um 600 á Pollamóti. Þessum keppendum fylgir svo væntanlega lið aðstandenda, þjálfara, liðsstjóra og annarra aðstoðarmanna.

Það er áfram von á fjölda fólks, en landsmót UMFÍ hefst um næstu helgi, og það fer óðum að styttast í Verslunarmannahelgi. Akureyri er að vonum vinsæll bær heim að sækja og undirritaður vonar að gestir bæjarins njóti dvalarinnar.

Athugasemdir