Torgið grasi gróið

Skrifað 02. júlí 2009 klukkan 15:59 | Ingimar Björn | Fréttir | Senda á Facebook |

Framkvæmdir við tyrfingu torgsins hófust snemma í morgun og er torgið nú orðið grænt og grasi vaxið. Að sögn Huldu Sifjar Hermannsdóttur á Akureyrarstofu er nú þegar kominn fjöldi fólks á grasið, en á morgun verður allsherjar grillveisla á grænu torginu. Herlegheitin hefjast í hádeginu og er fólk hvatt til að mæta með sumarleg teppi og þiggja pylsur frá Kjarnafæði og pylsubrauð frá Kristjánsbakarí eða mæta með eigin hádegisverðarpakka. Útvarpsstöðin Voice ætlar að sjá um notalega tónlist sem hæfir stemningunni.  Samleikur, hópur fólks í skapandi sumarstörfum, verður á svæðinu og mun án efa gleðja gesti torgsins með skemmtilegum uppákomum og upplifunum.

Torgið var tyrft í skjóli nætur síðasta sumar, og vakti það svo mikla lukku að stór hópur myndaðist á Facebook sem þrýsti á að leikurinn yrði endurtekinn nú í sumar. Bærinn tók vel í óskir þeirra og bauðst til að útvega þökur og mold ef bæjarbúar tækju sig saman um framkvæmdina. Signa Hrönn Stefánsdóttir, stofnandi Facebook hópsins, var meðal þeirra sem hjálpuðu til í morgun. Hún er að vonum sátt við torgið græna, en fámennt var þó í framkvæmdunum í morgun. Allt gekk þó vel og var framvæmdunum lokið um hádegi.

Hér má sjá árangurinn, en myndavélin á skrifstofum Akureyri.net var látin ganga í morgun.

[podcast format="video"]/video/torg.flv[/podcast]

Athugasemdir (3)

  1. Þetta er frábært að sjá, en ég las í frétt (hér) að torgið yrði fyrst dúkalagt með einhverju sem átti að halda rakanum í grasinu (í staðin fyrir að hleypa honum öllum niður í hellurnar).

    Var hætt við það?

  2. Sverrir Páll segir:

    Það er kannski ofsagt að torgið sé grasi gróið. Hins vegar er það grasi þakið. Ekki veit ég um dúklagningu en mér sýndist vera sett mikið af sandi undir torfið.

  3. Hmm.. já það er alveg rétt hjá þér. Ég þurfti að starta þessu svona 10 sinnum áður en ég sá hvað þú meinar. Myndbandið byrjar bara eftir að búið að er græja undirlagið :)