Torgið tyrft á morgun

Skrifað 01. júlí 2009 klukkan 14:28 | Ingimar Björn | Fréttir | Senda á Facebook |
Þessi mynd var tekin rétt eftir að torgið var þökulagt síðasta sumar. Myndin er tekin af síðu hópsins.

Þessi mynd var tekin rétt eftir að torgið var þökulagt síðasta sumar.

Ráðhústorgið á Akureyri mun taka stakkaskiptum þegar kemur að lit og mýkt á morgun fimmtudag en þá verður torgið tyrft og skreytt með fallegum blómum í öllum regnbogans litum.

Framkvæmdir hefjast í fyrramálið um áttaleytið og standa fram eftir degi. Bæjarbúum er velkomið að taka þátt með því að leggja fram hjálparhönd. Verkstjórinn á svæðinu verður hjálpfúsum bæjarbúum innan handar með úthlutun verkefna. Það verða hátt í 400 fermetrar af gæðaþökum lagðar á torgið og verður undirlagið þannig úr garði gert að grasið mun halda sínum græna lit út sumarið með reglulegri vökvun.

Ef veðurguðirnir leyfa er stefnan tekin á að grilla pylsur á Ráðhústorgi í hádeginu á föstudaginn og er fólk hvatt til að mæta með sumarleg teppi og þiggja pylsur frá Kjarnafæði og pylsubrauð frá Kristjánsbakarí eða mæta með eigin hádegisverðarpakka. Útvarpsstöðin Voice ætlar að sjá um notalega tónlist sem hæfir stemningunni. Samleikur, hópur fólks í skapandi sumarstörfum verður á svæðinu og mun án efa gleðja gestir torgsins með skemmtilegum uppákomum og upplifunum.

Ráðhústorg var tyrft síðastliðið sumar og var afar mikil ánægja meðal bæjarbúa og gesta að geta notið lífsins á litla grasblettinum. Þær ánægjustundir verða án efa endurteknar í sumar á fallega grænu Ráðhústorgi.

Lokað fyrir athugasemdir.