Leikfélag Akureyrar hefur gengið frá ráðningum leikara í söngleikinn Rocky Horror, sem frumsýndur verður í mars á næsta ári. Tónlistarstjóri sýningarinnar verður Andrea Gylfadóttir, sem einnig leikur Magnetu. Aðalhlutverkið, hlutverk Franks N. Furter, verður svo í höndum meistarans Magnúsar Jónssonar, Gus Gus drengs og eins reyndasta söngleikjaleikara landsins. Þá má nefna að Rocky sjálfur, hinn fullkomni karlmaður sem Frank N. Furter skapar í tilraunastofu sinni, verður leikinn af Eyþóri Inga Gunnlaugssyni frá Dalvík.
Af öðrum leikurum sýningarinnar má nefna Bryndísi Ásmundsdóttur í hlutverki Columbiu, Jönu Maríu Guðmundsdóttur og Atla Þór Albertsson sem Janet og Brad, og að lokum Jóhann G. Jóhannsson og Guðmund Ólafsson í hlutverkum Riff Raff og Dr. Scott.
Leikstjóri er Jón Gunnar Þórðarsson, þýðingu gerði Veturliði Guðnason, leikmyndin er í höndum Péturs Gauts Svavarssonar og búningarnir eru Rannveigar Evu Karlsdóttur. Gunnar Sigurbjörnsson hannar hljóðmynd og stjórnar hljóði á sýningum, en hljómsveit undir stjórn Andreu Gylfadóttur mun leika á sýningum.



