Valhalla Bank haslar sér völl sunnan heiða

Skrifað 30. júní 2009 klukkan 14:00 | | Fréttir | Senda á Facebook |
Starfsmenn vinna að undirbúningi opnunar bankans á Glerártorgi.

Starfsmenn vinna að undirbúningi opnunar bankans á Glerártorgi.

Norræni fjárfestingabankinn Valhalla Bank, sem opnaði fyrsta útibú sitt á Glerártorgi Akureyri á dögunum, hyggst nú hasla sér völl sunnan heiða. Kaupþing banki heimilaði endurnýtingu á útibúi sínu að tilefninu en nú kalla forráðamenn Valhalla eftir húsnæðisaðstoð ríkisbankanna hið syðra  þar sem það er í grænni stefnu bankans að endurnýta útrunnin og eða ónotuð útibú. Bankinn mun bjóða borgarbúum á veglega opnunarhátíð sína á Menningarnótt í Reykjavík náist samkomulag um húsnæði.

Forsvarsmenn ríkisbankanna eru hvattir til að hafa samband við talsmann bankastjóra Valhalla Bank, Evu Rún Snorradóttur,  sjái þeir sér fært að leggja að mörkum starfsvænt húsnæði um skamman tíma.

Athugaemdir