Sigrún Björk Jakobsdóttir, forseti bæjarstjórnar Akureyrar sagði í fréttum Ríkisútvarpsins í gærkvöldi að vert væri að skoða stofnun sérstaks flutningafyrirtækis á Akureyri til að jafna flutningskostnað fyrirtækja í bænum gagnvart samkeppnisaðilum sínum. Núverandi flutningafyrirtæki hafi farið í aðra starfsemi og tap af henni sé íþyngjandi fyrir akureysk fyrirtæki.
Bæjarstjórn Akureyrar hefur lengi talað fyrir lækkun flutningskostnaðar og samþykkti samhljóða ályktun á síðasta fundi sínum þar sem enn er skorað á stjórnvöld að jafna kostnaðinn. Í ályktun bæjarstjórnar segir meðal annars að löng hefð sé fyrir rekstri framleiðslufyrirtækja á Akureyri og að rekstrarumhverfi þeirra hafi að mörgu leyti verið gott, en vegna mikils og vaxandi flutningskostnaðar verði samkeppnisstaða þessara fyrirtækja sífellt erfiðari.
Þá segir í ályktuninni: “Bæjarstjórn ítrekar því fyrri ályktanir bæjaryfirvalda um mikilvægi þess að þegar í stað verði settar reglur og ráðist í aðgerðir til að jafna þennan aðstöðumun.”



