Síðasta embættisverk Þorsteins

Skrifað 30. júní 2009 klukkan 16:01 | Ingimar Björn | Fréttir | Senda á Facebook |
Þorsteinn afhendir Sigurði lyklavöldin af Háskólanum. Mynd/HA.

Þorsteinn afhendir Stefáni lyklavöldin af Háskólanum. Mynd/HA.

Þorsteinn Gunnarsson, fráfarandi rektor HA, framkvæmdi í dag sitt síðasta embættisverk þegar hann hengdi upp minningarskjöld um Þorbjörgu Finnbogadóttur.

Þorbjörg ánafnaði háskólanum andvirði íbúðar sinnar þegar hún féll frá í fyrra og var fjármununum varið í að bæta aðstöðu til fjarkennslu. Ættingjar Þorbjargar og vinkonur voru viðstaddar athöfnina og það var Guðrún Sigurðardóttir bróðurdóttir hennar sem afhenti Þorsteini skjöldinn til að hengja upp til minningar um frænku sína. Einnig voru viðstaddar þær Sigrún Höskuldsdóttir og Ingunn Björnsdóttir gamlir samstarfsfélagar og vinkonur Þorbjargar.

Að þessu loknu afhenti Þorsteinn nýjum rektor, Stefáni B. Sigurðssyni lyklavöldin að Háskólanum á Akureyri en Stefán tekur formlega til starfa á morgun, 1. júlí.

Lokað fyrir athugasemdir.