Helginn hefur göngu sína á Akureyri.net

Skrifað 30. júní 2009 klukkan 22:16 | Ingimar Björn | Fréttir | Senda á Facebook |
Helgi Hrafn og Hlynur Þór, myndatökumaður, við tökur á fyrsta þættinum.

Helgi Hrafn og Hlynur Þór, myndatökumaður, við tökur á fyrsta þættinum.

Á morgun, miðvikudaginn 1. júlí, hefst spjallþátturinn Helginn hér á Akureyri.net. Þar munu þeir Helgi Hrafn og Helgi Steinar fara yfir það helsta á Akureyri.net og á netinu öllu, og bulla og rugla um allt mögulegt. Þeir félagar setjast í sófann og vafra um netheima í leit að skemmtilegum og fyndnum molum, myndskeiðum og mannlífsathugunum. Þátturinn verður í fyrstu aðeins aðgengilegur á netinu, á slóðinni akureyri.net/helginn, en einnig má finna þá Helgana á Facebook, Twitter og Youtube.

Helgi Hrafn Halldórsson, 26 ára forritari, segir hugmyndina hafa komið upp þegar hann sýndi Helga Steinar, 25 ára ljósamanni og starfsmanni Pedromynda netþáttinn Diggnation.

“Þá fengum við þá flugu í hausinn að gera video blog sjálfir. Höfum báðir verið í því að blogga og gefist upp á því, með löngum pásum. Síðan kom Örlygur Hnefill einhvern veginn inní umræðuna og blandaði þessu við Akureyri.net og stækkaði video bloggið yfir í stærri þátt á netinu. Eftir það var í raun varla snúið við, það var búið að panta hönnun á merki, myndatökumenn búnir að taka frá daga í upptökur og konurnar okkar búnað að panta sér tíma í nudd.” segir Helgi Hrafn.

Helginn verður vonandi meira áberandi hér á Akureyri.net þegar fram líða stundir. Fréttavefurinn mun þó áfram verða í forgrunni og helsta viðfangsefni vefsins fréttir og fréttatengt efni, en von okkar er sú að vefurinn stækki og þjónusti íbúa á sem fjölbreyttastan máta í framtíðinni.

Hér fyrir neðan má sjá brot úr Helganum:

Það er hægt að sjá þetta myndskeið á Facebook og YouTube

Athugasemdir (2)

  1. Jæja! Nú er 1.júlí kominn…

  2. [...] Fréttastjóri Akureyri.net fékk mig í viðtal á MSN daginn fyrir frumsýningu fyrsta þáttar í gær og þá spurði hann mig hvernig þetta kom til. “Hugmyndin kom upphaflega þegar ég sýndi Helga Steinari netþáttinn Diggnation og þá fengum við þá flugu í hausinn að gera video blog sjálfir. Höfum báðir verið í því að blogga og gefist upp á því, með löngum pásum. Síðan kom Örlygur Hnefill einhvern veginn inní umræðuna og blandaði þessu við Akureyri.net og stækkaði video bloggið yfir í stærri þátt á netinu. Eftir það var í raun varla snúið við, það var búið að panta hönnun á merki, myndatökumenn búnir að taka frá daga í upptökur og konurnar okkar búnað að panta sér tíma í nudd.” Eins og kemur fram á Akureyri.net [...]