Flesta daga fjallar Akureyri.net um atburði líðandi stundar á Akureyri. Suma daga teygjum við okkur yfir í Þingeyjarsýslur og alla leið út á Siglufjörð þegar stórtíðindi gerast. Í kvöld verður hins vegar haldið talsvert lengra en flesta aðra daga – alla leið til Los Angeles í Bandaríkjunum þar sem konungur poppsins - Michael Jackson lést í kvöld - fimmtugur að aldri.
Skrifstofa réttarlæknis í Los Angeles staðfesti andlátsfregnina undir miðnætti að íslenskum tíma, en sögusagnir um andlát söngvarans höfðu verið á sveimi í allt kvöld. Jackson hafði skipulagt röð tónleika í Lundúnum á næstu vikum og átti fjöldi íslendinga miða á tónleika hans þar.
Hinn 10 ára gamli Jackson aðdáandi, Atli Már Bjarnason frá Akureyri, er meðal þeirra sem hugðust berja goðið augum í Lundúnum. Atli hefur getið sér gott orð á skemmtunum hér í bænum í vetur með dansatriði við lög Jacksons. Móðir Atla segir þau vera döpur yfir fréttunum, enda hafi verið mikil tilhlökkun að sjá kappann og fyrirmyndina á sviði. Þau mæðgin eru nú stödd í Reykjavík, en Atli mun sýna Jackson atriðið sitt í brúðkaupi þar í bæ á morgun.
Til að heiðra minningu poppkongsins látum við hér fylgja með upptöku af dansatriði Atla eins og það kom fyrir augu gesta á keppninnu um Ungfrú Norðurland fyrr í vor.






