Þórey Edda óvæntur gestur í Frjálsíþróttaskólanum á Laugum

Skrifað 25. júní 2009 klukkan 20:30 | | Fréttir, Íþróttir | Senda á Facebook |
Þórey Edda leiðbeinir upprennandi frjálsíþróttafólki. Myndir: Ingólfur Sigfússon

Þórey Edda leiðbeinir upprennandi frjálsíþróttafólki á Laugum í dag. Mynd: Ingólfur Sigfússon

Frjálsíþróttaskóli UMFÍ starfar þessa dagana á Laugum í Reykjadal. Ungmennin í skólanum fengu óvænta heimsókn í dag þegar Þórey Edda Elísdóttir frjálsíþróttakona mætti á svæðið. Hún var síðan með þeim á seinni æfingu dagsins þar sem farið var í stangarstökk, sem er hennar aðalgrein eins og flestir vita.

Þórey Edda var ánægð með stangarstökksaðstöðuna á Laugum en stangarstökksbúnaðurinn var vígður á Sumarleikum HSÞ árið 2007. Það voru Sparisjóður Suður Þingeyinga og þrjú aðildarfélög HSÞ sem gáfu búnaðinn. Mikla rigningu gerði meðan á æfingunni stóð en létu hinir upprennandi stangarstökkvarar það ekki á sig fá og tóku við leiðbeiningum frá íþróttastjörnunni af miklum áhuga.

Athugaemdir