Atvinnumálanefnd Dalvíkurbyggðar lýsir áhyggjum vegna þeirrar óvissu sem bæði nýjar og fyrirhugaðar breytingar á lögum um stjórn fiskveiða valda að því er fram kemur í ályktun sem nefndin sendi frá sér í dag.
“Staða fiskistofnanna og fiskveiðiráðgjöf er þannig að erfitt er fyrir mörg fyrirtæki að ná nauðsynlegri hagkvæmni í rekstri. Stóri vandinn er hve lítið má veiða af þorski. Þá magnar hin erfiða staða efnahagsmála upp óvissuna kringum greinina.
Dalvíkurbyggð á mikið undir því að stöðugleiki ríki í sjávarútvegi; stór hluti íbúanna vinnur við sjávarútveg þar sem fiskvinnsla er snar þáttur í atvinnustarfseminni. Það er því mikilvægt að stjórnvöld skapi greininni þá umgjörð sem þarf til að stöðugleiki sé sem mestur.”
Þá segir jafnframt í ályktuninni að nefndin skori á stjórnvöld að vinna að traustara starfsumhverfi sjávarútvegs, bæði fyrir starfsfólk og fyrirtæki.


