Hraðahindrunum vel tekið

23.06.09 15:48 | | Fréttir | Senda á Facebook |
Hraðahindrununum í Gilinu hefur verið vel tekið, segir deildarstjóri framkvæmdadeildar. Mynd/Ingimar Björn

Hraðahindrununum í Gilinu hefur verið vel tekið, segir deildarstjóri framkvæmdadeildar. Mynd/Ingimar Björn

Hraðahindrunum þeim er bæjaryfirvöld hafa komið fyrir í Kaupvangsstræti hefur verið vel tekið, að sögn Helga Más Pálssonar, deildarstjóra framkvæmdadeildar bæjarins. Hraðahindranirnar, sem eru færanlegar, var komið fyrir í Gilinu fyrir Bíladaga, meðal annars til að bregðast við kvörtunum íbúa í götunni, en mikill hávaði er oft af bílum og mótorhjólum sem þeysa upp gilið með inngjöfina í botni. Fá hindranirnar að standa fram yfir verslunarmannahelgi, en eftir það verður skoðað hvaða leiðir verða farnar til að lækka hraða og minnka umferð um Gilið.

Meðal þeirra leiða sem eru í skoðun, að sögn Helga, er lækkun hámarkshraða í 30 km á klukkustund, hraðahindranir eða hugsanlega að gatan verði gerð að einstefnu á niðurleið.

Athugasemdir