Fimm mánuðir skilorðsbundið fyrir kynferðisbrot

Skrifað 23. júní 2009 klukkan 13:24 | Örlygur Hnefill | Fréttir | Senda á Facebook |
Héraðsdómur Norðurlands eystra. Mynd/ÖHÖ

Héraðsdómur Norðurlands eystra. Mynd/ÖHÖ

Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur dæmt 24 ára gamlan mann í fimm mánaða skilorðsbundið fangesli fyrir kynferðisbrot gegn ungum dreng, sem var nágranni hans,  þegar hann sjálfur var á ungligsaldri. Brotin áttu sér stað á árabilini 2000 til 2003 en dæmdi er fæddur árið 1985. Voru brotin ítrekuð og áttu sér stað á heimili hins dæmda. Voru ákærði og brotaþoli leikfélagar þrátt fyrir 6 ára aldursmun.

Auk skilorðsbundins fangelsis var dæmda gert að greiða foreldrum drengsins 800 þúsund krónur í skaðabætur og tæplega 200 þúsund króna málskostnað.

Fylgiskjöl:
Dómur Héraðsdóms Norðurlands eystra í máli S-19/2009

Lokað fyrir athugasemdir.