Fjölbreytt leikár framundan hjá LA

Skrifað 19. júní 2009 klukkan 09:52 | | Fréttir | Senda á Facebook |
Úr sýningunni "Við borgum ekki, við borgum ekki" sem tekin verður til sýninga hjá LA í haust.

Úr sýningunni "Við borgum ekki, við borgum ekki" sem tekin verður til sýninga hjá LA í haust.

Leikfélag Akureyrar kynnti nú í vikunni dagskrá næsta lelikárs, og að venju býður leikfélagið upp á fjölbreytt og spennandi leikár. Þrjár frumsýningar eru fyrirhugaðar á leikárinu, en auk þeirra mun félagið taka hina vinsælu sýningu Fúlar á móti til sýninga sunnan heiða. Í haust verður svo hinn sígildi farsi Dario Fo, Við borgum ekki, við borgum ekki tekinn til sýninga í Samkomuhúsinu. Verkið var frumsýnt í Borgarleikhúsinu í byrjun júní og er samstarfsverkefni LA, Borgarleikhússins og Nýja Íslands.

Frumsýningar vetrarins eru fyrirhugaðar þrjár. Í haust verður frumsýnt leikverkið Lilja eftir Jón Gunnar Þórðarson, en það er byggt á kvikmyndinni Lilya 4 ever eftir Lukas Moodyson. Jón Gunnar leikstýrir jafnfram því verki. Næsta frumsýning vetrarins er verkið 39 þrep eftir Patrick Harlow í leikstjórn Maríu Sigurðardóttur og svo þegar nær dregur vori er það rokksöngleikurinn óviðjafnanlegi Rocky Horror í leikstjórn Jóns Gunnars. Þessi vinsæli söngleikur hefur ekki verið sýndur í atvinnuleikhúsi á Íslandi í 14 ár, og því kominn tími til að endurvekja hann.

Að venju mun LA bjóða upp á leiksýningar fyrir yngstu leikhúsgestina fyrir jólin og um páskana. Annað þessara verka mun verða nýtt verk eftir Snæbjörn Ragnarsson, en hann skrifaði sem kunnugt er barnaleikritið Lápur, Skrápur og jólaskapið sem LA setti upp á síðasta leikári og var tilnefnt til Grímunnar sem barnasýning ársins.

Á næsta leikári ætlar félagið svo að bjóða leikhúsgestum upp á að hafa áhrif á val verkefna næstu ára með því að hafa opna leiklestra á verkum sem eru í skoðun hjá leikfélaginu. Einnig mun LA bjóða upp á ljóðadagskrár, ýmsar tónlistaruppákomur, að hluta til í samvinnu við Tónlistarskólann á Akureyri og Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, og jafnvel er hugsanlegt að einhver verði ”í súpunni” á Friðriki V, en ”Þjónn í súpunni” átti sem kunnugt er miklum vinsældum að fagna sl. vetur. Þá mun félagið taka upp aftur eftir smá hlé hið vinsæla Krónuleikhús, en þá borga gestir eina krónu íslenska í aðgangseyrir og hlýða á leiklestur klassísks verks frá árdögum leiklistar á Íslandi. “Við fáum til okkar vandaðar og spennandi gestasýningar næsta vetur, verðum í samvinnu við önnur leikhús og leikhópa í landinu, svo ljóst er að leikárið verður afar fjölbreytt og skemmtilegt.” segir í fréttatilkynningu frá félaginu.

Blaðamenn Akureyri.net litu við í Samkomuhúsinu í gær.

[podcast format="video"]/video/aknet_la.flv[/podcast]

Athugaemdir